Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. september 2014 18:30
Daníel Freyr Jónsson
Daniel Sturridge byrjaður að æfa
Daniel Sturridge.
Daniel Sturridge.
Mynd: Getty Images
Það styttist óðum í endurkomu Daniel Sturridge, framherja Liverpool, sem hefur verið utan vallar sökum meiðsla undanfarnar viku.

Sturridge tók þátt í æfingu á Melwood æfingasvæðinu í dag, en hann hefur glímt við meiðsli í læri.

Þessi mikli markaskorari meiddist í er hann var með enska landsliðinu. Hann hefur því verið fjarri góðu gamni undanfarnar þrjár vikur, en búist er við að hann snúi aftur á völlinn fyrr en óttast var.

Ekki er búist við því að Sturridge taki þátt í leik Liverpool gegn West Ham um næstu helgi. Má hinsvegar gera ráð fyrir því að hann komi við sögu gegn Middlesbrough í deildabikarnum í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner