Heimild: Daily Mail
Spænski markvörðurinn Iker Casillas gæti verið á leið til Arsenal frá Real Madrid í janúarglugganum.
Frá þessu greina evrópskir fjölmiðlar, en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er sagður vilja fá nýjan markvörð í hópinn eftir slaka frammistöðu Wojciech Szczesny gegn Borussia Dortmund í gær.
Frá þessu greina evrópskir fjölmiðlar, en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er sagður vilja fá nýjan markvörð í hópinn eftir slaka frammistöðu Wojciech Szczesny gegn Borussia Dortmund í gær.
Arsenal hafði samband við umboðsmann Casillas í sumar en félagið ákvað á endanum að hætta við að fá markvörðinn.
Casillas er orðinn aðalmarkvörður Real Madrid á ný eftir brotthvarf Diego Lopez. Hann þurfti hinsvegar að sætta sig við mikið mótlæti stuðningsmanna liðsins eftir 2-1 tap gegn Atletico Madrid á heimavelli um helgina.
Athugasemdir