Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 17. september 2014 19:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Sky Sports 
Kagawa: Moyes treysti ekki á mig
Kagawa gekk ekki vel hjá United.
Kagawa gekk ekki vel hjá United.
Mynd: Getty Images
Shinji Kagawa, leikmaður Borussia Dortmund, segir að David Moyes fyrrum stjóri sinn hjá Manchester United hafi ekki treyst á sig.

Kagawa var í síðasta mánuði seldur til Dortmund á ný eftir að hafa verið í tvö ár hjá enska félaginu. Japaninn stóðst aldrei væntingar hjá félaginu og segir hann að hann hafi í raun aldrei farið frá Dortmund í huganum.

,,Ákvörðun mín var skýr. Ég vildi koma aftur til Dortmund og einungis það," sagði Kagawa.

,,Ég vil ná árangri með félaginu aftur og með engu öðru. Allir vita að seinna árið mitt á Englandi var sérstaklega erfitt."

,,Stjórinn treysti mér í raun ekki, auk þess sem liðinu var ekki að ganga vel. Því er ég enn glaðari með að vera hér á ný. Hjarta mitt var alltaf í Dortmund hvort eð er."
Athugasemdir
banner
banner