Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   sun 17. september 2017 21:42
Elvar Geir Magnússon
Óli Jó: Fáum nánast allt sem við viljum
Óli fagnar titlinum.
Óli fagnar titlinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson var að sjálfsögðu hress og kátur eftir að Valur innsiglaði Íslandsmeistaratitil sinn í kvöld.

Valsmenn hafa unnið titil á hverju ári síðan Óli tók við, bikarmeistarar tvö ár í röð og tóku svo þann stóra núna.

Lestu um leikinn: Valur 4 -  1 Fjölnir

„Við spiluðum flottan leik í kvöld. Við höfum verið með góða forystu í langan tíma. Við fórum yfir það í vikunni að við skulduðum alvöru Vals-frammistöðu og ég held að hún hafi komið í dag," sagði Óli.

Hann var ekki nægilega sáttur við spilamennskuna í síðustu leikjum þrátt fyrir að stig hafi komið í hús en í kvöld sýndu Valsmenn sínar bestu hliðar.

„Við Bjössi erum búnir að gera ágætt hérna. Við sögðum fyrir hin tvö árin að við værum ekki 100% klárir í að vinna mótið. Nú sögðum við fyrir þetta mót að við værum með lið til að fara alla leið."

„Góð liðsheild er okkar aðalsmerki. Það er staðið þvílíkt á bak við okkur af þeim sem stjórna hjá Val og við fáum nánast allt sem við viljum. Við leggjum mikið upp úr liðsheildinni og hún snýst líka um vinnu þeirra sem eru í kringum okkur. Það hefur verið gert frábærlega."

Þú verður hérna áfram á næsta tímabili er það ekki?

„Þetta tímabil er ekki búið, við þurfum að klára það fyrst... jú ég tel það nú líklegt að ég verði hérna áfram. Samt veit maður aldrei hvað gerist í þessu."

Er þá ekki bara stefnan að taka tvöfalt á næsta ári?

„Við skulum klára þetta ár og svo skal ég setjast niður með þér í marga daga og tala um fótbolta," sagði Óli brosandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner