Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 17. október 2014 12:27
Magnús Már Einarsson
Heimild: Eyjar.net 
Atli Fannar á förum frá ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn ungi Atli Fannar Jónsson er á förum frá ÍBV samkvæmt frétt Eyjar.net í dag.

Samkvæmt heimildum Eyjar.net hefur Atli Fannar fengið leyfi hjá knattspyrnuráði ÍBV til að ræða við önnur lið.

,,Ástæðurnar eru persónulegar en ljóst er að mikil eftirsjá verður í Atla Fannari þar sem hann er mjög efnilegur," segir í frétt ÍBV.

Hinn 19 ára gamli Atli Fannar er uppalinn hjá Breiðabliki en hann gerði tveggja ára samning við Eyjamenn í fyrra.

Í sumar skoraði Atli tvö mörk í 19 leikjum í Pepsi-deildinni með Eyjamönnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner