Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 17. október 2014 12:05
Magnús Már Einarsson
Elías Már á reynslu hjá Valerenga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már Ómarsson, leikmaður Keflavíkur, fór í gær til norska félagsins Valerenga á reynslu. Þetta staðfesti Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans í samtali við Fótbolta.net.

Elías Már verður hjá Valerenga næstu tíu dagana.

Upphaflega átti Elías Már að fara til norska félagsins Start á reynslu en ekkert verður af því í bili.

Hinn nítján ára gamli Elías átti mjög gott tímabil með Keflavík og skoraði sex mörk í PEpsi-deildinni.

Þá var Elías Már í íslenska U21 árs landsliðshópnum gegn Dönum á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner