Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. október 2014 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Herrera og Jones gætu náð leiknum gegn WBA
Ander Herrera gæti verið með á mánudag
Ander Herrera gæti verið með á mánudag
Mynd: Getty Images
Ander Herrera og Phil Jones, leikmenn Manchester United á Englandi, gætu náð leiknum gegn WBA á mánudag en Telegraph greinir frá þessu.

Herrera, sem kom frá Athletic Bilbao í sumar, meiddist gegn Everton í síðasta leik liðsins fyrir landsleikjahlé en talið var að hann yrði frá í meira en tvær vikur.

Það virðist vera sem svo að hann nái leiknum á mánudag en hann hefur tjáð Louis van Gaal, stjóra liðsins, að hann sé klár í slaginn gegn WBA.

Sömu sögu má segja af Phil Jones en hann ætti að vera í leikmannahópnum gegn WBA á mánudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner