Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 17. október 2014 22:00
Brynjar Ingi Erluson
Luis Enrique: Suarez er ekki feitur
Luis Suarez gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Real Madrid
Luis Suarez gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Real Madrid
Mynd: Getty Images
Luis Enrique, þjálfari Barcelona á Spáni, segist ekki vita ástandið á Luis Suarez, framherja félagsins en hann sé þó fullviss um að úrúgvæski leikmaðurinn sé ekki feitur.

Suarez er í banni fyrir að hafa bitið Giorgio Chiellini, varnarmann ítalska landsliðsins, á HM í sumar en banninu lýkur í næstu viku.

Hann mætir Real Madrid í sínum fyrsta leik fyrir Barcelona en ekki er víst að hann sé hundrað prósent tilbúinn í slaginn þar sem hann hefur einungis spilað nokkra æfingaleiki, þá aðallega með úrúgvæska landsliðinu.

,,Það er erfitt að segja. Honum finnst hann hafa bætt sig frá því hann kom hérna fyrst og landsleikirnir með Úrúgvæ hafa hjálpað honum. Ég veit ekki hvort hann sé hundrað prósent, níutíu prósent eða áttatíu prósent en hann er alla vega ekki feitur," sagði Enrique.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner