Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 17. október 2014 15:50
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Af heimasíðu KSÍ 
U17 dugir stig gegn Ítalíu eftir sigur gegn Armenum
Axel Andrésson, varnarmaður U17.
Axel Andrésson, varnarmaður U17.
Mynd: Heimasíða KSÍ
Þorlákur Árnason, þjálfari U17.
Þorlákur Árnason, þjálfari U17.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
U17 landslið karla vann í dag góðan tveggja marka sigur á Armenum í undankeppni EM, en riðillinn er leikinn í Moldavíu. Bæði mörk Íslands komu í fyrri hálfleik.

Íslenska liðið er nú með fjögur stig eftir tvo leiki og mætir Ítalíu í síðustu umferð, sem fram fer á mánudag, en Ítalir hafa unnið báða leiki sína með sömu markatölunni, 3-0, og eru þegar komnir áfram.

Jafntefli gegn Ítalíu tryggir íslenska liðinu sæti í milliriðlum. Tapi íslenska liðið og Moldóvar vinna Armena kemur til útreikninga vegna innbyrðis viðureigna og/eða markatölu. Takist hins vegar Moldóvum ekki að vinna Armena er íslenska liðið komið áfram, burtséð frá úrslitum í leik Íslands og Ítalíu.

Okkar drengir voru sterkari aðilinn heilt yfir gegn Armenum og voru því vel að sigrinum komnir. Máni Austmann Hilmarsson skoraði fyrra markið á 13. mínútu og Erlingur Agnarsson bætti öðru marki við eftir 36. mínútna leik. Armernar gerðu tvær breytingar í hálfleik og freistuðu þess að snúa leiknum sér í hag. Það tókst þó ekki og Íslendingar höfðu áfram undirtökin í leiknum. Jón Dagur Þorsteinsson var nærri því að bæta við þriðja marki Íslands á 75. mínútu og Erlingur Agnarsson á lokamínútunni, en mörkin urðu ekki fleiri.

Sem fyrr segir fer leikur Íslands og Ítalíu fram á mánudag og hefst hann kl. 12:00 að íslenskum tíma.

Byrjunarlið U17 í dag:
Andri Þór Grétarsson (m)
Alfons Sampsted
Axel Andrésson
Birkir Valur Jónsson
Dagur Hilmarsson
Erlingur Agnarsson
Júlíus Magnússon, fyrirliði
Kolbeinn Finnsson
Kristófer Konráðsson
Máni Hilmarsson
Mikael Harðarson
Athugasemdir
banner
banner
banner