Gianluigi Buffon segir að Juventus verði að bæta frammistöður sínar á tímabilinu vilji liðið keppast um titla.
Juve tapaði á heimavelli fyrir Lazio á laugardaginn og eru Ítalíumeistararnir fimm stigum frá toppliði Napoli eftir átta umferðir.
Juve tapaði á heimavelli fyrir Lazio á laugardaginn og eru Ítalíumeistararnir fimm stigum frá toppliði Napoli eftir átta umferðir.
Vinsæll grínþáttur á Ítalíu gefur Gullna Tapírinn sem einskonar kaldhæðnis-skammarverðlaun eftir hverja umferð.
Eftir síðustu umferð hlutu Buffon, Giorgio Chiellini, Andrea Barzagli og Gonzalo Higuain allir verðlaunin.
„Við þurfum að bæta okkur. Stuðningsmennirnir hafa verið frábærir og verðskulda fleiri titla," sagði Buffon þegar hann tók við Tapírnum.
Athugasemdir