Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 17. október 2017 10:20
Elvar Geir Magnússon
Reynir AC Milan að fá Allegri aftur?
Massimiliano Allegri.
Massimiliano Allegri.
Mynd: Getty Images
Fjölmiðlar á Ítalíu segja að AC Milan sé að velta því fyrir sér að reyna að fá Massimiliano Allegri, þjálfara Juventus, aftur í þjálfarastólinn.

Allegri gerði AC Milan að Ítalíumeisturum 2011 og hefur síðustu þrjú tímabil unnið tvennuna með Juventus.

La Repubblica segir að æðstu menn AC Milan séu farnir að þreifa fyrir sér og kanna hug Allegri.

Vincenzo Montella, þjálfari AC Milan, er í heitu sæti og þegar hefur verið talað um félagið sé með Carlo Ancelotti og Antonio Conte á blaði hjá sér fyrir næsta sumar.

Það er óvíst hvort mögulegt sé fyrir Milan að krækja í Allegri en í sumar skrifaði hann undir samning við Juventus til 2020. Þá myndi hann hitta varnarmanninn Leonardo Bonucci aftur hjá AC Milan en illindi komu upp í sambandi þeirra í lok síðasta tímabils.

AC Milan hefur ekki staðið undir væntingum í byrjun tímabils og eftir þrjá tapleiki í röð er liðið í tíunda sæti ítölsku A-deildarinnar, tólf stigum frá toppliði Napoli.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 24 4 1 71 14 +57 76
2 Milan 29 19 5 5 55 33 +22 62
3 Juventus 29 17 8 4 44 23 +21 59
4 Bologna 29 15 9 5 42 25 +17 54
5 Roma 29 15 6 8 55 35 +20 51
6 Atalanta 28 14 5 9 51 32 +19 47
7 Napoli 29 12 9 8 44 33 +11 45
8 Fiorentina 28 12 7 9 41 32 +9 43
9 Lazio 29 13 4 12 36 33 +3 43
10 Monza 29 11 9 9 32 36 -4 42
11 Torino 29 10 11 8 28 26 +2 41
12 Genoa 29 8 10 11 31 36 -5 34
13 Lecce 29 6 10 13 26 45 -19 28
14 Udinese 29 4 15 10 28 44 -16 27
15 Verona 29 6 8 15 26 39 -13 26
16 Cagliari 29 6 8 15 29 50 -21 26
17 Empoli 29 6 7 16 22 43 -21 25
18 Frosinone 29 6 6 17 37 60 -23 24
19 Sassuolo 29 6 5 18 33 56 -23 23
20 Salernitana 29 2 8 19 23 59 -36 14
Athugasemdir
banner
banner
banner