Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 17. nóvember 2014 17:27
Alexander Freyr Tamimi
Benítez útilokar að kaupa Balotelli í janúar
Balo er ekki á leið til Napoli.
Balo er ekki á leið til Napoli.
Mynd: Getty Images
Rafa Benítez, þjálfari Napoli, hefur útilokað að hann reyni að fá Mario Balotelli frá Liverpool í félagaskiptaglugganum í janúar.

Balotelli hefur engan veginn verið að finna sig á Anfield og á enn eftir að skora sitt fyrsta deildarmark eftir að hafa komið frá AC Milan síðasta sumar.

Benítez ætlar þó ekki að reyna að fá framherjann aftur til Ítalíu frá sínum gömlu vinnuveitendum.

,,Stuðningsmenn Liverpool eru traustir. Ef hann leggur hart að sér inni á vellinum munu þeir styðja hann," sagði Spánverjinn við Gazetta dello Sport.

,,Að Mario sé á leið til okkar í janúar? Það er nákvæmlega ekkert til í þessu, mér hefur ekki einu sinni dottið það í hug."

Athugasemdir
banner
banner
banner