Mauricio Pochettino hefur tilkynnt belgíska miðjumanninum Mousa Dembele að hann megi finna sér nýtt lið þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Dembele var keyptur fyrir 15 milljónir punda frá Fulham árið 2012 en hefur ekki tekist að heilla Pochettino í vetur og hefur aðeins byrjað 5 leiki fyrir Lundúnarliðið sem hefur verið í vandræðum.
Talið er kappinn sé falur fyrir 7 milljónir punda en hann á 59 landsleiki að baki fyrir Belgíu.
Pochettino er einnig sagður ætla losa sig við Kyle Naughton en Tottenham hefur gengið frá kaupum á bandaríska bakverðinum DeAndre Yedlin og verður hann löglegur með liðinu um leið og félagaskiptaglugginn opnar 1.janúar næstkomandi.
Athugasemdir