Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 17. nóvember 2014 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Di Maria: Ronaldo sannfærði mig um að fara til United
Di Maria er númer 7, rétt eins og Ronaldo.
Di Maria er númer 7, rétt eins og Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Angel di Maria segir að Cristiano Ronaldo hafi hjálpað til við að sannfæra sig um að ganga til liðs við Rauðu djöflana í Manchester.

Ronaldo fór á sínum tíma frá Manchester United til Real Madrid á 80 milljónir punda. Di Maria fór hina leiðina, frá Real til Man Utd, á 60 milljónir.

,,Ronaldo sagði mér að Manchester United væri risastórt félag. Hann sagði að þetta myndi vera gott fyrir mig og að ég yrði mjög ánægður hér,"
,,Það sem hann sagði hjálpaði mér að ákveða áfangastað. Þetta er mikilvægt skref í ferlinum og ég er mjög ánægður hér. Vonandi gengur allt upp svo ég geti verið hér í mörg ár."

Tvímenningarnir mætast í vináttulandsleik á þriðjudaginn þar sem Argentína spilar við Portúgal.
Athugasemdir
banner
banner
banner