Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 17. nóvember 2014 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fellaini ekki refsað fyrir olnbogaskot
Pablo Zabaleta hefur einnig lent í olnboganum á Fellaini.
Pablo Zabaleta hefur einnig lent í olnboganum á Fellaini.
Mynd: Video Grab SkySports
Marouane Fellaini hefur ekki verið dæmdur í leikbann eftir að hafa gefið Joe Allen olnbogaskot í landsleik Belgíu gegn Wales á sunnudaginn.

Myndband af atvikinu má sjá neðar þar sem Fellaini (194sm) og Allen (168sm) klessa á hvorn annan. Stóri Belginn rekur þá olnbogann gífurlega harkalega, enda á fleygiferð, í litla Walesverjann.

Allen sagði eftir leikinn að þetta hafi verið óviljaverk og dómari leiksins Pavel Kralovec skrifaði ekkert um atvikið í leikskýrsluna þrátt fyrir að blætt hafi hressilega úr nefi Allen.


Athugasemdir
banner
banner
banner