Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. nóvember 2014 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heppinn aðili getur unnið trefil áritaðan af Moyes
Ætli þetta sé trefillinn?
Ætli þetta sé trefillinn?
Mynd: Getty Images
David Moyes tók við Real Sociedad í síðustu viku og er hans fyrsti deildarleikur við stjórnvölinn gegn Deportivo de La Coruna um helgina.

Real Sociedad hefur af því tilefni efnt til Twitter-leiks þar sem einn heppinn aðili getur unnið Real Sociedad trefil áritaðan af Moyes sjálfum.

Þetta hefur kætt marga netverja þar sem Moyes er enn álitinn aðhlátursefni hjá mörgum eftir slakt tímabil við stjórnvölinn hjá Manchester United.

Real Sociedad @RealSociedadEN:
Viltu vinna Real Sociedad trefil sem er áritaður af David Moyes? Þá þarftu einfaldlega að endurtísta þessu og elta @RealSociedadEN! #RealSociedad

Real Sociedad @RealSociedadEN:
Við munum snarlega kynna sigurvegaran sem fær áritaðan trefil frá David Moyes að launum. Fylgist með gangi mála hér og gangi ykkur vel! #RealSociedad
Athugasemdir
banner
banner
banner