banner
   mán 17. nóvember 2014 10:30
Arnar Geir Halldórsson
Luka Modric frá í nokkrar vikur
Luka Modric
Luka Modric
Mynd: Getty Images
Króatíski snillingurinn Luka Modric meiddist eftir tæplega hálftíma leik í gær gegn Ítalíu.

Luka Modric hefur myndað öflugt teymi með Toni Kroos hjá Real Madrid en gæti nú misst af næstu sex leikjum liðsins en talið er að meiðslin geti haldið Modric frá vellinum í 2-4 vikur.

Real Madrid hefur leik í HM félagsliða þann 16.desember og væri mikið áfall fyrir liðið og Modric að missa af mótinu sem fram fer í Marókko.

Modric hefur verið í lykilhlutverki hjá Madrídarliðinu á tímabilinu, spilað 19 leiki, skorað eitt mark og lagt upp þrjú.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner