Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 17. nóvember 2014 13:17
Arnar Geir Halldórsson
Tottenham á eftir njósnara Southampton
Mynd: Getty Images
Tottenham eru sagðir vera ganga frá samningum við Paul Mitchell, yfirnjósnara Southampton.

Mitchell vann með Pochettino hjá Southampton og vill Mauricio Pochettino gera Mitchell að yfirmanni leikmannamála hjá Tottenham.

Þessar fréttir geta varla talist góðar fyrir Franco Baldini sem er núverandi yfirmaður leikmannamála hjá Lundúnarliðinu en hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir innkaup undanfarinna ára hjá Tottenham og spurning hvort dagar hans hjá félaginu séu senn taldir.

Það hefur lítið gengið hjá Tottenham á tímabilinu en talið er að Pochettino ætli líka að ná sér í leikmenn frá sínu gamla félagi og er Jay Rodriguez þá helst nefndur til sögunnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner