Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 17. nóvember 2015 22:42
Magnús Már Einarsson
Heimir: Þurfum kannski að taka upp hárþurrkur
LG
Borgun
Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Borgun
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við megum helst ekki skora snemma í leikjum. Það boðar ekki gott," sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari við Fótbolta.net eftir 3-1 tapið gegn Slóvakíu í Zilina í kvöld. Ísland leiddi 1-0 í hálfleik en missti það forskot niður líkt og gegn Pólverjum á föstudag.

Lestu um leikinn: Slóvakía U21 3 -  1 Ísland

„Þetta var skrýtinn leikur. Mér fannst allt vera í sóma þar til þeir skora. Þá brotna menn saman. Mér fannst menn spila þetta vel þar til að þeir jafna leikinn," sagði Heimir en hvað gerist í hálfleik? „Við þurfum að fara að taka upp einhverjar hárþurrkur eða eitthvað til að breyta þess," sagði Heimir léttur.

„Mér fannst ekki vera nein hætta þar til að þeir skora. Það var ekki hálfleikurinn sem fór með þetta. Kannski var það markið sem braut okkur niður, við vorum orðnir þreyttir eða of margar skiptingar riðluðu leiknum hjá okkur."

„Þetta var svipað og gegn Póllandi. Mörkin voru léleg og við vorum að gefa mörk. Það má ekki á móti svona andstæðingum. Mér fannst þeir ekki verðskulda að skora þrjú mörk."

„Okkur að kenna"
Ögmundur Kristinsson hefur fengið gagnrýni eftir leikina gegn Póllandi og Slóvakíu en hann hefði mátt gera betur í fyrsta markinu í báðum leikjunum.

„Við vorum búnir að halda hreinu fram að markinu og maður hugsaði að það væri gott fyrir hann að fá sjálfstraust eftir að hafa fengið fjögur mörk á sig síðast. Það var ekkert við hann að sakast í öðru markinu. Boltinn fór í andstæðing og yfir hann. Stundum er þetta bara þannig. Maður fær á sig mörk og þetta var þannig séð okkur að kenna. Við gáfum þeim boltann og vorum klaufar."

Margt jákvætt
Birkir Bjarnason spilaði aftarlega á miðjunni í fjarveru Arons Einars Gunnarssonar og stóð sig vel.

„Mér fannst Birkir spila mjög vel í þesasri stöðu. Þetta var eitt af því sem við vildum skoða. Hver gæti leyst Aron Einar af ef hann meiðist."

„Mér fannst Sverrir (Ingi Ingason) koma vel inn í þennan leik en það komu 1-2 mistök í lokin þegar hann var orðinn þreyttur. Haukur Heiðar (Hauksson) spilaði vel og það er margt jákvætt í þessum leik."


Hér að ofan má sjá viðtalið við Heimi í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner