fös 17. nóvember 2017 17:00
Elvar Geir Magnússon
Æfingaleikur: Sjö mörk þegar Njarðvík vann Aftureldingu
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Njarðvík vann 5-2 sigur gegn Aftureldingu í æfingaleik í Reykjaneshöllinni í gær.

Liðin voru saman í 2. deildinni í sumar en Njarðvíkingar unnu deildina og komust þar með upp í Inkasso-deildina.

Andri Fannar Freysson og Arnór Björnsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Njarðvík í leiknum í gær og Styrmir Gauti Fjeldsted skoraði eitt.

Fyrir Aftureldingu skoruðu Steinar Ægisson og Georg Guðjónsson.

Hér að neðan má sjá mörkin úr leiknum.



Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner