Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. nóvember 2017 18:30
Magnús Már Einarsson
Bayern í viðræðum um kaup á Wagner
Wagner fagnar marki.
Wagner fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen er í viðræðum um kaup á Sandro Wagner framherja Hoffenheim.

Jupp Heynckes , þjálfari Bayern, staðfesti í dag að Hasan Salihamidzic, yfirmaður íþróttamála, sé í viðræðum við Hoffenheim.

„Við erum ekki komnir lengra en þetta. Það er of snemmt að segja meira," sagði Heynckes.

„Það er vanalega mjög erfitt að ganga frá svona félagaskiptum yfir vetrartímann. Við þurfum að sjá hvort það sé mögulegt og undir hvaða kringumstæðum."

Wagner er 29 ára gamall en hann ólst upp hjá Bayern Munchen á sínum tíma.
Athugasemdir
banner
banner