Saido Mane er tæpur fyrir leik Liverpool og Southampton í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Hinn 25 ára gamli Mane missti af fimm leikjum í október vegna meiðsla aftan í læri áður en hann sneri aftur gegn West Ham í byrjun mánaðarins.
Meiðslin tóku sig aftur upp í landsleik með Senegal um síðustu helgi og óvíst er hvort Mane geti spilað gegn gömlu félögunum í Southampton á morgun.

„Við þurfum að bíða með Saido. Við sjáum til í dag," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag.
Adam Lallana hóf æfinar að nýju í vikunni eftir langa fjarveru en Klopp segir að hann komi ekki strax inn í leikmannahópinn.
Athugasemdir