banner
   fös 17. nóvember 2017 22:12
Helgi Fannar Sigurðsson
Spánn: Girona og Real Sociedad skildu jöfn
Mynd: Getty Images
Girona 1-1 Real Sociedad
0-1 Willian Jose (7')
1-1 Christhian Stuani (64')

Einn leikur fór fram í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Girona tók þá á móti Real Sociedad og lauk leiknum með 1-1 jafntefli.

Willian Jose kom gestunum yfir snemma leiks en Christhian Stuani jafnaði leikinn fyrir Girona um miðbik seinni hálfleiks.

Þetta reyndust vera einu mörk leiksins og eftir leikinn situr Girona áfram um miðja deild, í 10.sæti, sem verður að teljast nokkuð gott þar sem þeir eru nýliðar í deildinni.

Real Sociedad er í 7.sæti, rétt fyrir neðan Evrópusæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner