Stuðningsmenn Manchester United fengu gleðifréttir nú rétt í þessu en Jose Mourinho, stjóri liðsins, staðfesti þá að Zlatan Ibrahimovic, Marcos Rojo og Paul Pogba verði allir í leikmannahópnum gegn Newcastle á morgun.
Zlatan og Rojo hafa ekkert verið með á þessu tímabili en þeir meiddust illa á hné síðastliðið vor.
Þeir eru báðir klárir í slaginn en Rojo spilaði hálfleik með U23 ára liði Manchester United í vikunni.
Pogba hefur verið frá keppni vegna meiðsla á læri síðan í september en hann er einnig klár í slaginn.
Leikurinn á morgun hefst á Old Trafford klukkan 17:30.
Athugasemdir