Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 17. desember 2014 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool mætir Chelsea í undanúrslitum
Mynd: Getty Images
Liverpool mætir Chelsea í undanúrslitum enska deildabikarsins á meðan Tottenham spilar við 3. deildarlið Sheffield United. Fyrri umferð undanúrslitanna er 19. janúar á Anfield Road og White Hart Lane en síðari umferðin er spiluð viku seinna.

Liverpool lagði Bournemouth í 8-liða úrslitunum í kvöld á meðan Tottenham slátraði Newcastle.

Sheffield United sló Southampton út í síðustu umferð en þetta er í fyrsta sinn sem þriðjudeildarlið kemst í undanúrslitin síðan Stockport County gerði það tímabilið 1996-97.

19. janúar:
Liverpool - Chelsea
Tottenham - Sheffield United

26. janúar:
Chelsea - Liverpool
Sheffield United - Tottenham
Athugasemdir
banner
banner