Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. desember 2014 10:18
Elvar Geir Magnússon
Stuðningsmenn Liverpool fagna meiðslum Johnson
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Glen Johnson hjá Liverpool verður frá í mánuð vegna nárameiðsla sem hann hlaut í 3-0 tapinu gegn Manchester United um liðna helgi.

Johnson er ekki mjög vinsæll á Anfield eins og sést bersýnilega á Twitter þar sem stuðningsmenn Liverpool keppast við að fagna meiðslum leikmannsins.

Liverpool er í erfiðum málum og hefur aðeins unnið tvo af síðustu tíu leikjum sínum.

Jon Flanagan er á góðri leið með að snúa aftur en varnarmaðurinn ungi er að glíma við hnémeiðsli. Hann spilaði reglulega í seinni hluta síðasta tímabils.







Athugasemdir
banner
banner
banner