Darren Ferguson, stjóri Doncaster Rovers, hefur verið ákærður fyrir ummæli sem hann lét falla eftir leik gegn Plymouth á dögunum.
Darren var ósáttur við að fá ekki vítaspyrnu í leiknum sem endaði með 1-1 jafntefli. Hann hraunaði yfir dómarana að leik loknum en fór langt yfir strikið með ummælum sínum.
„Dómararnir eru í hlutastarfi og gæðin eru ekki góð, þeir eru í hræðilegu formi. Ég er búinn að fá nóg en hvað get ég gert í þessu? Skotið þá, það væri góð hugmynd."

Ferguson hefur beðist afsökunar á ummælum sínum. Hann fær til 22. janúar til að svara fyrir sig en líklegt er að hann sé á leið í bann og fái nokkuð háa sekt í þokkabót.
Darren er sonur Sir Alex Ferguson, sem er jafnan talinn besti knattspyrnustjóri sem uppi hefur verið. Sir Alex náði mögnuðum árangri á löngum ferli með Manchester United.
Athugasemdir