Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. janúar 2018 23:34
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton að kaupa Locadia
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Brighton & Hove Albion sé í viðræðum um kaup á Jurgen Locadia, sóknarmanni PSV Eindhoven.

Locadia er 24 ára Hollendingur sem hefur gert 45 mörk í 123 deildarleikjum fyrir PSV.

Locadia getur spilað sem fremsti maður og á vinstri kanti og á yfir 30 leiki að baki fyrir yngri landslið Hollands.

Brighton er ekki búið að skora nema 17 mörk í 23 deildarleikjum á tímabilinu og er aðeins þremur stigum frá falli.

Verði Locadia seldur er ljóst að meira pláss skapast fyrir Albert Guðmundsson sem er ein skærasta stjarna varaliðs PSV.
Athugasemdir
banner
banner