fim 18. janúar 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Myndband: Lingard grínast með læknisskoðun Sanchez
Lingard er stuðbolti.
Lingard er stuðbolti.
Mynd: Getty Images
Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, sló á létta strengi þegar hann tók yfir Instagram aðgang félagsins í dag.

Lingard þóttist vera að spjalla við leikmann í læknisskoðun hjá United. „Njóttu þess að vera í læknisskoðun," sagði Lingard meðal annars.

Augljóst er að Lingard var að grínast með félagaskipti Alexis Sanchez.

Sanchez er ekki mættur í læknisskoðun hjá United en líklegt er hins vegar að hann fari í slíka skoðun innan tíðar. Sanchez gæti orðið leikmaður United fyrir helgi en Henrikh Mkhitaryan fer til Arsenal í staðinn.

Hér að neðan má sjá Lingard slá á létta strengi.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner