Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. janúar 2018 16:30
Magnús Már Einarsson
Van Dijk með Liverpool á mánudag - Henderson byrjaður að æfa
Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, er byrjaður að æfa á nýjan leik eftir meiðsli.

Henderson meiddist aftan í læri gegn Arsenal þann 22. desember og hefur verið frá keppni síðan þá.

Henderson tók fullan þátt á æfingu Liverpool í dag og gæti snúið aftur í leikmannahópinn gegn Swansea á mánudagskvöld.

Virgil van Dijk snýr væntanlega aftur í vörnina gegn Swansea eftir að hafa misst af 4-3 sigrinum gegn Manchester City um síðustu helgi vegna smávægilegra meiðsla aftan í læri.

Van Dijk hafði áður skorað í sínum fyrsta leik með Liverpool eftir að hann kom til félagsins frá Southampton.
Athugasemdir
banner
banner