Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 18. febrúar 2018 18:58
Ívan Guðjón Baldursson
Steven Davies: Erfitt að komast aftur í form
Mynd: Getty Images
Steven Davies kom inná sem varamaður á 75. mínútu er C-deildarlið Rochdale tók á móti Tottenham í enska bikarnum.

Davies skoraði jöfnunarmark heimamanna í uppbótartíma og var himinlifandi að leikslokum.

Þetta var fyrsti leikur Davies á árinu og segist hann hafa átt erfitt með að koma sér aftur í form eftir meiðsli sem hann hlaut rétt fyrir áramót.

„Þetta er stórkostlegt. Ég er búinn að vera frá vegna meiðsla í sjö vikur og hef átt erfitt með að komast aftur í form," sagði Davies við BBC.

„Það hefur verið erfitt að komast aftur inn í liðið en í kvöld stóð ég mig vel. Þetta var draumi líkast.

„Þetta var skrifað í skýin. Við erum með frábæra liðsheild og munum aldrei gefast upp."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner