Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 18. febrúar 2018 05:55
Gunnar Logi Gylfason
Ítalía í dag - Toppliðin spila - Borgarslagur í Torino
Leikmenn Juventus þurfa ekki að ferðast langt fyrir leik dagsins
Leikmenn Juventus þurfa ekki að ferðast langt fyrir leik dagsins
Mynd: Getty Images
Sex leikir fara fram í Seria A í dag. Í hádegisleik dagsins verður borgarslagur þar sem Ítalíumeistararnir í Juventus mæta á Stadio Olimpico Grande Torino og spila gegn heimamönnum í Torino.

Klukkan 14:00 hefjast þrír leikir. Neðsta lið deildarinnar, Benevento, tekur á móti Crotone, sem er fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.

Bologna tekur þá á móti Sassuolo. Bæði lið eru í neðri hluta töflunnar en þó í nokkuð þægilegri fjarlægð frá fallsætunum.

Napoli, sem situr í efsta sæti deildarinnar, tekur á móti SPAL 2013, sem situr í fallsæti með 17 stig og er fjórum stigum frá öruggu sæti.

Klukkan 17:00 tekur Atalanta á móti Fiorentina. Heimamenn eru í baráttu um Evrópudeildarsæti en gestirnir sitja um miðja deild.

Síðasti leikur dagsins hefst klukkan 19:45 þegar AC Milan fær Sampdoria í heimsókn á San Siro. Hið fornfræga lið AC Milan situr í 7.sæti deildarinnar með 38 stig. Þremur stigum og einu sæti ofar sitja gestirnir. Það er því mikið í húfi í leik kvöldsins.

Leikir dagsins:
11:30 Torino - Juventus
14:00 Benevento - Crotone
14:00 Bologna - Sassuolo
14:00 SSC Napoli - SPAL 2013
17:00 Atalanta - Fiorentina
19:45 AC Milan - Sampdoria
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 24 4 1 71 14 +57 76
2 Milan 29 19 5 5 55 33 +22 62
3 Juventus 29 17 8 4 44 23 +21 59
4 Bologna 29 15 9 5 42 25 +17 54
5 Roma 29 15 6 8 55 35 +20 51
6 Atalanta 28 14 5 9 51 32 +19 47
7 Napoli 29 12 9 8 44 33 +11 45
8 Fiorentina 28 12 7 9 41 32 +9 43
9 Lazio 29 13 4 12 36 33 +3 43
10 Monza 29 11 9 9 32 36 -4 42
11 Torino 29 10 11 8 28 26 +2 41
12 Genoa 29 8 10 11 31 36 -5 34
13 Lecce 29 6 10 13 26 45 -19 28
14 Udinese 29 4 15 10 28 44 -16 27
15 Verona 29 6 8 15 26 39 -13 26
16 Cagliari 29 6 8 15 29 50 -21 26
17 Empoli 29 6 7 16 22 43 -21 25
18 Frosinone 29 6 6 17 37 60 -23 24
19 Sassuolo 29 6 5 18 33 56 -23 23
20 Salernitana 29 2 8 19 23 59 -36 14
Athugasemdir
banner
banner