Það voru þrír leikir að klárast í ítölsku úrvalsdeildinni.
Napoli endurheimti toppsætið af Juventus með naumum sigri á heimavelli gegn nýliðunum í Spal.
Eina markið gerði brasilíski miðjumaðurinn Allan snemma leiks.
Napoli endurheimti toppsætið af Juventus með naumum sigri á heimavelli gegn nýliðunum í Spal.
Eina markið gerði brasilíski miðjumaðurinn Allan snemma leiks.
Napoli er nú með einu stigi meira en Juventus á toppi deildarinnar en ljóst er að baráttan um titilinn verður hörð.
Bologna hafði betur gegn Sassuolo, 2-1 á meðan botnlið Benevento vann sjaldgæfan sigur, á heimavelli gegn Crotone.
Hér að neðan eru úrslit og markaskorarar þeirra leikja sem voru að klárast núna rétt í þessu.
Napoli 1 - 0 Spal
1-0 Allan ('6 )
Bologna 2 - 1 Sassuolo
1-0 Andrea Poli ('12 )
1-1 Khouma Babacar ('38 )
2-1 Erick Pulgar ('88 )
Rautt spjald: Edoardo Goldaniga, Sassuolo ('87)
Benevento 3 - 2 Crotone
0-1 Giovanni Crociata ('11 )
1-1 Sandro ('37 )
2-1 Nicolas Viola ('65 )
2-2 Ahmad Benali ('73 )
3-2 Cheick Diabate ('89 )
Sjá einnig:
Ítalía: Higuain fór meiddur af velli er Juventus tók toppsætið
Leikir kvöldsins:
17:00 Atalanta - Fiorentina
19:45 AC Milan - Sampdoria
Athugasemdir