Grindavík 0 - 0 Þór
Einum leik er lokið í Lengjubikar karla á þessum fallega sunnudegi. Grindavík og Þór áttust við í Akraneshöllinni.
Þetta var fyrsti leikur Þórsara í mótinu en Grindvíkingar, sem komu mikið á óvart í Pepsi-deildinni síðasta sumar, kláruðu lið fólksins úr Kópavoginum í sínum fyrsta leik í Lengjubikarnum, 4-1.
Þessi leikur upp á Skaga var fremur bragðdaufur og var hann markalaus í hálfleik. Þegar um 20 mínútur voru búnar af seinni hálfleiknum misstu Grindvíkingar mann að velli með rautt spjald en Þórsurum tókst ekki að nýta sér það og lokatölur 0-0.
Grindavík er því með fjögur stig eftir tvo leiki en Þórsarar hafa eitt stig eftir sinn fyrsta leik í mótinu.
0-0. Leik lokið.
— Þór Akureyri (@Thor_fotbolti) February 18, 2018
Athugasemdir