Sigurganga Atletico Madrid í spænska boltanum hélt áfram er liðið hafði betur gegn Athletic Bilbao í dag.
Þetta er fjórði sigur Atletico í röð í deildinni og er liðið aðeins búið að fá 9 mörk á sig í 24 leikjum, tveimur minna en Barcelona.
Kevin Gameiro skoraði fyrra mark Atletico og lagði það seinna upp fyrir Diego Costa.

Villarreal er í sjötta sæti eftir jafntefli gegn Espanyol. Villarreal er fjórum stigum frá Real Madrid, sem er í meistaradeildarsæti en á tvo leiki til góða. Espanyol er í neðri hluta deildarinnar, níu stigum frá fallsæti.
Real Sociedad lenti ekki í erfiðleikum gegn Levante og vann 3-0. Real Sociedad er um miðja deild á meðan Levante er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Atletico Madrid 2 - 0 Athletic Bilbao
1-0 Kevin Gameiro ('67)
2-0 Diego Costa ('80)
Espanyol 1 - 1 Villarreal
0-1 Rodrigo Hernandez ('25)
1-1 Esteban Granero ('85)
Real Sociedad 3 - 0 Levante
1-0 Xabi Prieto ('10, víti)
2-0 Juanmi ('38)
3-0 Sergio Canales ('55)
Athugasemdir