Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 18. febrúar 2018 16:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Augsburg saknaði Alfreðs
Gomez tryggði Stuttgart sigurinn.
Gomez tryggði Stuttgart sigurinn.
Mynd: Getty Images
Augsburg 0 - 1 Stuttgart
0-1 Mario Gomez ('27 )

Fyrri leikur dagsins í deild þeirra bestu á Þýskalandi er búinn. Íslendingalið Augsburg fékk Stuttgart í heimsókn.

Alfreð Finnbogason er að glíma við meiðsli og gat ekki leikið með sínum mönnum í Augsburg í dag.

Alfreð hefur verið mjög drjúgur í markaskorun á tímabilnu og Augsburg saknar hans mjög í sóknarleiknum. Það sást í dag þar sem liðið tapaði með einu marki gegn engu. Eina mark leiksins gerði Mario Gomez, sem á þónokkra landsleiki fyrir Þýskaland.

Augsburg hefur tapað tveimur í röð og er í áttunda sæti deildarinnar á meðan Stuttgart er í 13. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner