Hoffenheim 0 - 1 Wolfsburg
0-1 Pernille Harder ('15)
0-1 Pernille Harder ('15)
Sara Björk Gunnarsdóttir var á sínum stað í byrjunarliði Wolfsburg er liðið heimsótti Hoffenheim í efstu deild í Þýskalandi.
Pernille Harder skoraði eina mark leiksins snemma og er Wolfsburg á toppi deildarinnar, með þriggja stiga forystu á Bayern.
Sara spilaði allan leikinn og hefur þótt standa sig vel hjá Wolfsburg, en hún skoraði fimm mörk í síðustu sex leikjum liðsins í fyrra.
Sara og stöllur eru komnar í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar, þar sem þær mæta Slavia Prag í lok mars. Slavia sló Stjörnuna úr leik í síðustu umferð.
Athugasemdir