Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus, segir að leikur liðsins gegn Sampdoria á morgun verði erfiðari en leikirnir gegn Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Juventus er á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar, átta stigum á undan Roma sem er í öðru sæti, en Allegir segir að það sé ekkert pláss fyrir vanmat gegn liði eins og Sampdoria.
Juventus er á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar, átta stigum á undan Roma sem er í öðru sæti, en Allegir segir að það sé ekkert pláss fyrir vanmat gegn liði eins og Sampdoria.
„Þetta verður heilland leikur (gegn Barcelona), en leikurinn á morgun er sá erfiðasti af öllum þar sem þú þarft ekki neina hvatningu gegn Barcelona," sagði Allegri.
„Sampdoria hefur unnið Roma, Milan og erkifjendur sína í Genoa. Þeir hafa unnið fimm og gert tvö jafntefli í síðustu sjö leikjum sínum, svo við þurfum að eiga toppleik."
„Þetta verður stór leikur gegn Barcelona, en það þýðir ekkert að tala um hann núna. Ég vil að leikur að þessari stærðargráðu sé venjulegur fyrir okkur."
Athugasemdir