Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. mars 2017 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnór Ingvi fór meiddur út af - Tæpur fyrir Kosóvó?
Icelandair
Mun Arnór Ingvi spila gegn Kosóvó?
Mun Arnór Ingvi spila gegn Kosóvó?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi Traustason fór meiddur af velli í hálfleik þegar lið hans Rapíd Vín mætti Mattersburg í austurrísku úrvalsdeildinni í dag.

Arnór Ingvi fór meiddur af velli í leik með Rapíd Vín fyrr í þessum mánuði og það er greinilegt að eitthvað er að angra hann.

„Arnór Trausta haltraði í fyrri og skipti út af í hálfleik. Vonandi ekkert alvarlegt!" sagði Örvar Je. Arnarsson, fréttaritari Fótbolta.net í Austurríki á Twitter í dag.

Arnór Ingvi er í landsliðshópnum sem mætir Kósóvó eftir sex daga. Það er spurning hvort þetta hafi einhver áhrif á mörguleika hans að ná þeim leik.

Ísland er í kantaveseni fyrir leikinn gegn Kosóvó og það væri því mjög slæmt að missa Arnór Ingva líka.

Okkar aðalkantmenn, þeir Birkir Bjarnason og Jóhann Berg Guðmundsson eru báðir frá vegna meiðsla og munu ekki spila gegn Kosóvó.



Athugasemdir
banner
banner