Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 18. mars 2017 17:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cahill: Nú er pressan á hinum liðunum
Cahill fagnar sigurmarki sínu.
Cahill fagnar sigurmarki sínu.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Gary Cahill var hetja Chelsea þegar liðið mætti Stoke í ensku úrvalsdeildinni í dag. Chelsea vann leikinn 2-1.

Cahill skoraði sigurmark Chelsea þegar lítið var eftir og nú þarf eitthvað mikið að gerast til þess að liðið verði ekki meistari.

„Þjálfarinn sagði okkur að halda áfram að spila okkar fótbolta; það eina sem skiptir máli á þessu stigi eru sigrar," sagði Cahill.

„Við eigum bara tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni í þessum mánuði. Við náðum í góð úrslit og getum því núna slakað á og horft á restina af leikjunum á morgun. Nú er pressan á hinum liðunum."

„Ég hef spilað í þeirri stöðu að liðið sem þú ert í samkeppni við vann sinn leik og svo þarf þú að ná í góð úrslit."
Athugasemdir
banner
banner
banner