Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 18. mars 2017 17:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Stoke og Chelsea: Willian sýndi sínar bestu hliðar
Willian var besti maður Chelsea.
Willian var besti maður Chelsea.
Mynd: Getty Images
Chelsea jók forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í 13 stig með sigri á Stoke City á útivelli í dag.

Willian kom Chelsea yfir, en Jonathan Walters jafnaði metin úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Varnarmaðurinn Gary Cahill tryggði Chelsea sigurinn með marki á 87. mínútu.

Það virðist fátt geta komið í veg fyrir að Chelsea verði meistari, sérstaklega eftir þessi úrslit í dag.

Maður leiksins í dag var Willian, en hann kom inn í Chelsea-liðið vegna meiðsla Eden Hazard. Hér að neðan má sjá einkunnargjöfina frá Sky Sports í heild sinni.

Einkunir Stoke: Grant (6), Bardsley (5), Shawcross (6), M. Indi (7), Pieters (5) , Ramadan Sobhi (6), Cameron (7), Allen (7), Arnautovic (7), Walters (7), Berahino (6).

Varamenn: Diouf (6), Crouch (...).

Einkunnir Chelsea: Courtois (7), Azpilicueta (6), David Luiz (7), Cahill (7),
Moses (6), Kante (8), Matic (7), Alonso (7), Willian (8), Diego Costa (7), Pedro (6).

Varamenn: Loftus-Cheek (6), Fabregas (6), Zouma (...)

Maður leiksins: Willian.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner