Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. mars 2017 14:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir West Brom og Arsenal: Craig Dawson fær 9
Mynd: Getty Images
West Brom gerði sér lítið fyrir og skellti Arsenal í hádegisleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það er farið að hitna verulega undir Arsene Wenger, stjóra Arsenal, og margir stuðningsmenn vilja sjá hann fara.

Craig Dawson skoraði tvisvar fyrir West Brom í dag, en bæði mörkin komu eftir hornspyrnu. West Brom hefur mjög gaman að því að skora úr hornspyrnum!

Maður leiksins í dag er skiljanlega Craig Dawson, en flestir leikmenn West Brom fá mjög góða einkunn hjá Sky Sports. Það fær þó enginn leikmaður Arsenal meira en 7.

Hér að neðan má sjá einkunnirnar í heild sinni, en þær koma eins og áður segir frá Sky Sports.

Einkunnir West Brom: Foster (7), Dawson (9), McAuley (7), Evans (8), Nyom (8), Livermore (8), Fletcher (8), Brunt (7), Chadli (7), McClean (7), Rondon (6).

Varamenn: Robson-Kanu (7), Yacob (4), Field (...)

Einkunnir Arsenal: Cech (5), Bellerin (6), Koscielny (5), Mustafi (6), Monreal (5), Ramsey (5),
Xhaka (6), Walcott (5), Oxlade-Chamberlain (6), Sanchez (6), Welbeck (6).

Varamenn: Ospina (4), Iwobi (4), Giroud (4).

Maður leiksins: Craig Dawson.
Athugasemdir
banner
banner
banner