Chelsea jók forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í 13 stig með sigri á Stoke City á útivelli í dag. Fimm leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni núna fyrir stuttu.
Willian kom Chelsea yfir eftir 13 mínútur á Bet365-vellinum, en hann var að leysa Eden Hazard af í dag. Hazard var meiddur.
Jonathan Walters náði þó að jafna fyrir Stoke með marki úr vítaspyrnu á 38. mínútu og staðan í hálfleik var 1-1.
Það virtist allt stefna í jafntefli, alveg þangað til Gary Cahill skoraði á 87. mínútu og tryggði Chelsea þar með sigurinn.
Það virðist fátt geta komið í veg fyrir að Chelsea verði meistari og sérstaklega eftir þessi úrslit hjá þeim í dag. Ríkjandi Englandsmeistarar Leicester eru að finna fjölina aftur, en þeir unnu West Ham í dag, 3-2, þar sem Jamie Vardy og Riyad Mahrez voru báðir á meðal markaskorara.
Crystal Palace vann mikilvægan sigur á Watford, Everton burstaði Hull, þar sem Romelu Lukaku skoraði tvisvar undir lokin, og Sunderland og Burnley gerðu markalaust jafntefli.

Crystal Palace 1 - 0 Watford
1-0 Troy Deeney ('68 , sjálfsmark )
Everton 4 - 0 Hull City
1-0 Dominic Calvert-Lewin ('9 )
2-0 Enner Valencia ('79 )
3-0 Romelu Lukaku ('90 )
4-0 Romelu Lukaku ('90 )
Rautt spjald: Tom Huddlestone, Hull City ('73)
Stoke City 1 - 2 Chelsea
0-1 Willian ('13 )
1-1 Jonathan Walters ('38 , víti)
1-2 Gary Cahill ('87 )
Rautt spjald: Phil Bardsley, Stoke City ('90 )
Sunderland 0 - 0 Burnley
West Ham 2 - 3 Leicester City
0-1 Riyad Mahrez ('5 )
0-2 Robert Huth ('8 )
1-2 Manuel Lanzini ('20 )
1-3 Jamie Vardy ('38 )
2-3 Andre Ayew ('63 )
Leikur Bournemouth og Swansea hefst kl. 17:30.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir