Antoine Griezmann segir að framtíð sín sé í höndum Atletico Madrid. Búist er við því að þessi öflugi leikmaður verði eftirsóttur þegar sumarið gengur í garð.
Sögusagnir sem tengja hann við Manchester United skjótast upp alls staðar, en hann er sagður efstur á óskalista rauðu djöflana.
Sögusagnir sem tengja hann við Manchester United skjótast upp alls staðar, en hann er sagður efstur á óskalista rauðu djöflana.
Griezmann hefur reynt hvað hann getur að fjarlæga sig frá þessum orðrómi, en hann segir að allt sé þetta í höndum Atletico.
„Eins og ég hef margoft sagt, þá er ég með samning við Atletico, ég er ánægður hérna og fjölskylda mín er það líka," sagði Griezmann við beIN Sports.
„Og líka, til þess að fara, þá verður félagið fyrst að vilja að selja mig, ekki satt?" sagði sá franski ennfremur.
Athugasemdir