„Mér fannst við eiga þetta skilið," sagði Gunnar Borgþórsson þjálfari Selfoss eftir að liðið vann 1-2 sigur á Fylki í Lengjubikarnum í kvöld en leikið var í Egilshöll.
Lestu um leikinn: Fylkir 1 - 2 Selfoss
„Leikurinn var skemmtilegur, það var svolítið um slagsmál eins og virðist alltaf vera þegar þessi lið mætast. Að okkar hálfu var fyrri hálfleikur mjög slæmur. Við vörðumst illa, vorum langt á eftir og uppleggið okkar gekk ekki upp. En við áttum flott spjall í hálfleik og áttum mjög góðan leik í seinni hálfleik. Við náðum að leggja þetta vel upp, loka á þá og byggja okkur upp. Það er oft erfitt að að spila á móti þriggja manna varnarlínu."
Selfoss hefur unnið tvo leiki í Lengjubikarnum, gert eitt jafntefli og tapað einum. Gunnar er ánægður með undirbúningstímabilið.
„Við erum aðeins betri en á sama tíma í fyrra. Við fengum sömu leikmenn, kjarninn er sá sami og við erum að missa lítið og æfa vel. Við erum að styrkja okkur mikið innanfrá, fá unga stráka upp úr 2. flokknum sem styrkja okkur mjög mikið líka," sagði hann en ætlar Selfoss að fá fleiri leikmenn til liðs við félagið áður en Íslandsmótið hefst?
„Já, kannski detta inn einn eða tveir. Hvort sem það er upp úr 2. flokki í meistaraflokkinn eða lánsmaður. Ég veit það ekki. Ég reikna fastlega með því en við erum ánægðir með liðið. Við erum með lítinn hóp, ef við missum tvo út í dag þá náum við ekki að fylla skýrslu í næsta leik."
Gunnar sagði fljótlega eftir að hann tók við að hann ætlaði að hafa í mesta lagi þrjá erlenda leikmenn í Selfoss liðinu, ef einhverja. Í byrjunarliðinu í Lengjubikarnum í dag voru fimm erlendir leikmenn.
„Erlendir leikmenn eða aðkomuleikmenn," sagði Gunnar. „Ódýrasta leiðin fyrir okkur er að taka inn leikmenn sem koma erlendis frá og eru tilbúnir að vinna í bæjarfélaginu okkar. Andy Pew er Selfyssingur og er búinn að vera hér í tíu ár. Hann er af erlendu bergi brotinn, en Íslendingur og Selfyssingur í okkar huga. Þetta skiptir samt engu máli, planið er ennþá að byggja upp leikmenn og við erum að því. Við erum að spila þeim mörgum í hverri einustu viku. Af þessum 20 manna hóp eru langflestir strákar af suðurlandi."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan
Athugasemdir