Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   lau 18. mars 2017 16:08
Hafliði Breiðfjörð
Óli Palli: Það eru alvöru karlmenn í Keflavík
Ólafur Páll á hliðarlínunni í vetur ásamt Heimi þjálfara og Eiríki Þorvarðarsyni markmannsþjálfara.
Ólafur Páll á hliðarlínunni í vetur ásamt Heimi þjálfara og Eiríki Þorvarðarsyni markmannsþjálfara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var fínn leikur, ágætis tempó og við héldum boltanum vel og sérstaklega framan af leiknum. Ég er ánægður með okkar menn ," sagði Ólafur Páll Snorrason aðstoðarþjálfari FH eftir 2-3 sigur liðsins á Keflavík í Lengjubikarnum í dag en nokkur læti voru milli leikmanna liðanna á köflum.

Lestu um leikinn: Keflavík 2 -  3 FH

„Það er oft þannig á móti Keflavík að það verða læti. Það eru alvöru karlmenn í Keflavík, en það er bara eins og við bjuggumst við, læti og erfiður leikur."

Ólafur Páll sagði eins og Heimir Guðjónsson þjálfari liðsins hefur sagt nokkrum sinnum í vetur að félagið sé að leita að fleiri leikmönnum.

„Við erum hægt og rólega að fá menn aftur úr meiðslum og annað en við leynum því ekki að við viljum styrkja hópinn og erum enn í því ferli að reyna að fá til okkar leikmenn. Það hefur ekki gengið nógu vel hingað til svo við höldum því áfram."

Bjarni Þór Viðarsson hefur ekkert spilað með FH á undirbúningstímabilinu og Ólafur Páll segir óvíst hvenær hann verður klár að nýju.

„Ég þori ekki að fara með það. Bjarni er að stíga upp úr erfiðum meiðslum og fór í aðgerð í haust. Ég vona innilega að hann verði klár á þeim tíma sem við þurfum á honum að halda sem er í lok apríl en ég veit það ekki nákvæmlega."



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner