Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 18. mars 2017 09:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þjálfari Newport County fékk skilaboð frá Henry
Thierry Henry (hér til vinstri).
Thierry Henry (hér til vinstri).
Mynd: Getty Images
Mike Flynn, bráðabirgðarstjóri Newport County, segist hafa fengið skilaboð frá Thierry Henry eftir sigurleik á dögunum.

Flynn, sem var ráðinn til að stýra Newport eftir að félagið rak Graham Westley, hefur unnið báða leiki sína síðan hann tók við.

Morguninn eftir sigur á Morecambe á þriðjudaginn fékk Flynn skemmtileg skilaboð frá Henry, sem er fyrrum sóknarmaður Arsenal. Flynn hefur setið þjálfaranámskeið með Henry.

„Þetta var súrrealískt," sagði Flynn.

„Hann er ein af hetjum mínum í leiknum. Hann er ótrúlegur innan sem utan vallar."

„Ég bað hann um að taka skóna af hillunni, en hann var því miður ekki til í það," sagði Flynn léttur.
Athugasemdir
banner
banner