Spænski varnarmaðurinn Raul Albiol tryggði Napoli nauman sigur gegn Genoa í ítalska boltanum fyrr í kvöld.
Albiol skoraði með skalla eftir hornspyrnu og er Napoli búið að minnka forystu Juventus á toppnum niður í tvö stig, eftir jafntefli Juve gegn nýliðum Spal í dag.
Albiol skoraði með skalla eftir hornspyrnu og er Napoli búið að minnka forystu Juventus á toppnum niður í tvö stig, eftir jafntefli Juve gegn nýliðum Spal í dag.
„Þetta verður bara erfiðara og erfiðara. Ég er ánægður með sigurinn og við verðum að halda áfram að vinna," sagði Albiol að leikslokum.
„Við vitum að Juve er gríðarlega sterkt lið og við þurfum að gera okkar allra besta til að halda velli í titilbaráttunni. Það eru níu leikir eftir og við verðum að vinna þá alla til að eiga möguleika á titlinum."
Juventus er búið að vinna sex titla í röð og hefur titilbaráttan sjaldan verið jafn erfið að undanförnu, þar sem Inter og Napoli voru efst á stigatöflunni stóran hluta tímabilsins.
Athugasemdir