Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. mars 2018 16:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Frakkland: Fanndís byrjaði á bekknum í mikilvægum sigri
Fanndís byrjaði á bekknum.
Fanndís byrjaði á bekknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albi 0 - 2 Marseille
Mörk Marseille: Alidou 2

Fanndís Friðriksdóttir byrjaði á varamannabekknum þegar Marseille vann mikilvægan sigur á Albi í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta gæti reynst gífurlega mikilvægur sigur fyrir Marseille.

Það var Marie-Yasmine Alidou sem skoraði bæði mörk Marseille í leiknum í dag en hann fór 2-0.

Fanndís byrjaði sem fyrr segir á bekknum, í aðeins annað sinn á tímabilinu, en hún kom inn á sem varamaður á 67. mínútu.

Marseille komst upp af botni deildarinnar með þessum sigri. Það eru fimm umferðir eftir en Marseille er þremur stigum frá næsta liði.
Athugasemdir
banner
banner