Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 18. mars 2018 18:25
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Keflavík skoraði fjórtán
Fjögur mörk á fjórum mínútum í upphafi síðari hálfleiks
Sveindís Jane setti þrennu í fyrri hálfleik.
Sveindís Jane setti þrennu í fyrri hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík gjörsamlega slátraði Sindra er liðin mættust í Lengjubikar kvenna í dag.

Sveindís Jane Jónsdóttir setti tvö á fyrstu tíu mínútunum og bætti því þriðja við fyrir leikhlé. Staðan var 6-1 í hálfleik.

Marín Rún Guðmundsdóttir setti svo þrennu í síðari hálfleik og lauk leiknum með alltof auðveldum 14-1 sigri heimamanna.

Viðureign Tindastóls gegn Völsungi var talsvert jafnari. Jóney Ósk Sigurjónsdóttir gerði gæfumuninn og skoraði tvö fyrir Húsvíkinga á síðasta stundarfjórðungi leiksins.

Keflavík 14 - 1 Sindri
1-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('6)
2-0 Sveindís Jane Jónsdóttir ('8)
3-0 Katla María Þórðardóttir ('30)
3-1 Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir ('34)
4-1 Sveindís Jane Jónsdóttir ('34)
5-1 Anita Lind Daníelsdóttir ('44)
6-1 Sophie Groff ('45)
7-1 Anita Lind Daníelsdóttir ('50)
8-1 Eva Lind Daníelsdóttir ('51)
9-1 Marín Rún Guðmundsdóttir ('53)
10-1 Marín Rún Guðmundsdóttir ('54)
11-1 Mairead Clare Fulton ('62)
12-1 Freyja Sól Kristinsdóttir ('71, sjálfsmark)
13-1 Marín Rún Guðmundsdóttir ('84)
14-1 Mairead Clare Fulton ('87)

Tindastóll 0 - 2 Völsungur
0-1 Jóney Ósk Sigurjónsdóttir ('76)
0-2 Jóney Ósk Sigurjónsdóttir ('83)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner